Fréttasafn

Fréttir frá fjölmenningu í Árborg

Ný myndbönd og fræðsluefni um tengsl heimila og grunnskóla

1. október 2021

Tengjumst er nýr vefur til að efla foreldra í hlutverkum sínum í menntun grunnskólabarna sinna. Þar má finna fjögur myndbönd, hvert um sig á arabísku, íslensku, pólsku og spænsku, ásamt fræðsluefni. Myndböndin fjalla um mikilvæg málefni og veita leiðsögn um tengsl heimila og grunnskóla í íslensku samfélagi. Nánari upplýsingar á …

Ný myndbönd og fræðsluefni um tengsl heimila og grunnskóla Read More »

Hagnýtt íslenskunámskeið fyrir foreldra barna með fjölmenningarlegan bakgrunn á grunnskólaaldri

24. september 2021

Fjölskyldusvið Árborgar vinnur nú að undirbúningi íslenskunámskeiðs fyrir foreldra barna með fjölmenningarlegan bakgrunn á grunnskólaaldri. Markmið verkefnisins er að bjóða foreldrum grunnskólanema með fjölmenningarlegan bakgrunn í Sveitarfélaginu Árborg á ókeypis íslenskunámskeið þar sem þeir munu kynnast helstu hugtökum og efla orðaforða sem tengist skólastarfi. Námskeiðið mun fara fram í Vallaskóla á Selfossi. Boðið verður upp á ókeypis málörvun fyrir börn þátttakenda á meðan á námskeiðinu stendur, í …

Hagnýtt íslenskunámskeið fyrir foreldra barna með fjölmenningarlegan bakgrunn á grunnskólaaldri Read More »

Alþingiskosningar á morgun, 25. september 2021

24. september 2021

Kosningar til Alþingis fara fram á morgun, 25. september 2021. Allir íslenskir ​​ríkisborgarar sem eru 18 ára og eldri og með lögheimili hér á landi þegar kosningar fara fram geta kosið í þingkosningum. Kjörstaðir verða í Vallaskóla, Sólvöllum 2, á Selfossi; í samkomuhúsinu Staður, Búðarstíg 7, Eyrarbakka og í grunnskólanum …

Alþingiskosningar á morgun, 25. september 2021 Read More »

Loftgæðamælingar við Selfoss vegna eldgoss

15. september 2021

Umhverfisstofnun fór þess á leit við sveitarfélagið í sumar að fá að koma upp loftgæðamælum á Selfossi sem lið í því að þétta net loftgæðamæla vegna eldgossins í Geldingadölum.   Nú eru tveir mælar komnir upp og mælingar hafnar sem eru í nær-rauntíma og uppfærast á 10 mín.fresti. Nánari upplýsingar: …

Loftgæðamælingar við Selfoss vegna eldgoss Read More »

Námskeið fyrir börn á aldrinu 7-12 ára á Selfossi

3. september 2021

Hugarfrelsi býður upp á tvö námskeið fyrir börn á aldrinu 7-12 sem vilja efla einbeitingu, sjálfsmynd, styrkleika og jákvæða hugsun. Námskeiðin eru 10 vikur og hægt er að nota frístundastyrk: https://fjolmenning.arborg.is/ibuar/fristundar-og-menningardeild/. Nánari upplýsingar um námskeið ætlað börnum í 2. – 4. bekk grunnskóla: https://hugarfrelsi.is/namskeidin/katir-krakkar-7-9-ara/ Nánari upplýsingar um námskeið ætlað börnum …

Námskeið fyrir börn á aldrinu 7-12 ára á Selfossi Read More »

Útivistartími barna breyttist 1. september

2. september 2021

Foreldrar og forráðamenn, athugið: 12 ára og yngri mega ekki vera á almannafæri eftir klukkan 20.00 nema í fylgd með fullorðnum. 13 til 16 ára skulu ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22.00, enda séu þau ekki á heimferð frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Nánari upplýsingar á: https://www.arborg.is/frettasafn/utivistartimi-barna-breytist-1.september

Frístundaaksturinn á skólaárinu 2021/2022

26. ágúst 2021

Tímatafla frístundabíls innan Selfoss tók gildi 25.ágúst en allar nánari upplýsingar má finna hér: https://www.arborg.is/frettasafn/fristundaaksturinn-hefst-midvikudaginn-25.agust Frístundaakstur milli þéttbýliskjarna innan sveitarfélagsins er áfram hluti af Árborgarstrætó og má sjá tímatöfluna hér: https://www.arborg.is/ibuar/samgongur/almenningssamgongur/

Skólastarf Stekkjaskóla hefst í Bifröst

6. ágúst 2021

Tafir hafa orðið á framkvæmdum á húsnæði og skólalóð Stekkjaskóla og því mun skólastarfið hefjast í frístundaheimilinu Bifröst við Vallaskóla. Skólastjórnendur sendu upplýsingapóst til foreldra en fljótlega verður þeim einnig boðið upp á upplýsinga- og samstarfsfund með umsjónarkennurum og skólastjórnendum. Nánari upplýsingar á: https://www.arborg.is/frettasafn/skolastarf-stekkjaskola-hefst-i-bifrost

Menningarganga eldri borgara um nýjan miðbæ á Selfossi

29. júlí 2021

Mánudaginn 16. ágúst verður haldin menningarganga eldri borgara og nýji miðbær Selfoss heimsóttur. Gangan verður farin með fyrirvara um gildandi fjöldatakmarkanir. Gangan hefst kl. 14:00 á Brúartorginu við tréið. Skráning er óþörf og gangan er ókeypis. Við hvetjum eldri borgara af erlendum uppruna til að taka þátt! Nánari upplýsingar á: …

Menningarganga eldri borgara um nýjan miðbæ á Selfossi Read More »

ATH. AFLÝST! Unglingalandsmót UMFÍ á Selfossi

20. júlí 2021

ATH. Aflýst vegna COVID-19 samkomutakmarkana! 29. júlí – 1. ágúst verður haldið unglingalandsmót – íþrótta- og fjölskylduhátíð á Selfossi þar sem börn og ungmenni frá 11-19 ára taka þátt í fjölmörgum íþróttagreinum. Öll kvöld verða tónleikar með vinsælu tónlistarfólki. Skráningargjald á Unglingalandsmót UMFÍ er 7.900 krónur en nánari upplýsingar um …

ATH. AFLÝST! Unglingalandsmót UMFÍ á Selfossi Read More »