Ísland.is

Ísland.is er upplýsinga- og þjónustuveita opinberra aðila á Íslandi. Þar getur fólk fengið upplýsingar og notið margvíslegrar þjónustu hjá opinberum aðilum á einum stað í gegnum eina gátt. 

Meginmarkmið Ísland.is er að einstaklingar  geti afgreitt erindi sín við stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga, hvenær sem er, hvar sem er og án tafar. Einnig geti einstaklingar fengið upplýsingar um sín mál og fylgst með stöðu þeirra. 

Nánari upplýsingar: https://island.is/