Fréttasafn
Fréttir frá fjölmenningu í Árborg
Innritun í grunnskóla skólaárið 2026−2027
Innritun barna sem eru fædd árið 2020 og eiga að hefja skólagöngu í Sveitarfélaginu Árborg haustið 2026 hefst 9. febrúar næstkomandi. Innritun fer fram á https://island.is/umsoknir/grunnskoli og hefst úrvinnsla umsókna um miðjan febrúar. Nánari upplýsingar: https://www.arborg.is/frettasafn/innritun-i-grunnskola-skolaarid-2026-2027-1
Innritun barna í leikskóla fyrir skólaárið 2026 – 2027
Aðalinnritun í leikskóla Árborgar fyrir haustið 2026 fer fram í mars og apríl nk. Foreldrar þeirra barna sem fá úthlutað leikskólaplássi fá svarbréf í tölvupósti sem mikilvægt er að bregðast við. Umsóknum er skilað inn á rafrænu formi í gegnum Völu. Nánari upplýsingar: https://www.arborg.is/frettasafn/innritun-barna-i-leikskola
Komdu að tala íslensku | Bókasafn Árborgar Selfossi
Viltu æfa þig í íslensku? Á þriðjudögum kl. 16:00-17:30 hittumst við á Bókasafninu á Selfossi, Austurvegur 2 og spjöllum saman. Æfðu þig í íslensku og hittu fleiri sem eru líka að æfa sig. Öll velkomin!
Sjóðurinn góði 2025
Nú hefur Sjóðurinn Góði opnað fyrir umsóknir um jólaaðstoð. Hægt verður að sækja um til 10.desember. Styrkurinn er hugsaður til þess að styrkja einstaklinga og fjölskyldur sem standa höllum fæti og eiga ekki fyrir nauðþurftum fyrir jólin. Hér er vefslóð á umsóknina: íslenska: https://www.sjodurinngodi.is/is/jolaadastod enska: https://www.sjodurinngodi.is/is/christmas-help Gögn sem þurfa að fylgja öllum umsóknum eru: Tekjur og […]
Komdu að tala íslensku | Bókasafn Árborgar Selfossi
Viltu æfa þig í íslensku? Á þriðjudögum kl. 16:00-17:00 hittumst við á Bókasafninu á Selfossi, Austurvegur 2 og spjöllum saman. Æfðu þig í íslensku og hittu fleiri sem eru líka að æfa sig. Öll velkomin!
Hraðstefnumót við íslenskuna 18. september
Viltu tala íslensku? Hraðstefnumót við íslenskuna í safnaðarheimili Selfosskirkju 18. september kl. 17:00. Fyrirkomulagið verður eins og á hraðstefnumóti eða svokölluðu speed-dating nema hvað markmiðið er að æfa sig í íslensku. Léttar veitingar og öll velkomin! Nánari upplýsingar: https://www.arborg.is/vidburdadagatal/gefdu-islensku-sens-hradstefnumot-vid-islenskuna-18.-og-25.-september
Frístundamessa Árborgar
Laugardaginn 6. september frá kl. 10 – 12 verður haldin frístundamessa fyrir íbúa Árborgar í Lindexhöllinni þar sem meðal annars verða kynntar frístundir fyrir börn og félagsstarf fyrir fullorðna. Nánari upplýsingar: https://www.arborg.is/vidburdadagatal/fristundamessa-arborgar
Vinnuskóli 2025
Megin hlutverk Vinnuskólans er að veita nemendum uppbyggileg sumarstörf ásamt fræðslu í öruggu starfsumhverfi. Öllum nemendum 8, 9. og 10. bekkja býðst að koma til starfa við fjölbreytt verkefni sem flest snúa að garðyrkju og umhirðu í sveitarfélaginu. Unglingar geta einnig sótt um þátttöku í Skapandi sumarstörfum. Í vinnuskóla farið […]
Umsókn um reiðhjól frá Hjólasöfnun 2025 fyrir efnaminni fjölskyldur
Hægt er að sækja um gjafahjól fyrir börnin hér: https://forms.office.com/r/BbfY0jirUs Vinsamlegast athugið að það þarf að senda eina umsókn fyrir hvert hjól sem sótt er um.
