Sveitarfélagið Árborg í samstarfi við verkefnið „Mitt Atkvæði – Mín Rödd“ býður öllum innflytjendum sem búa í Árborg að taka þátt í vinnustofu sem haldin verður á ensku fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Vinnustofan er öllum að kostnaðarlausu og fer fram laugardaginn 2. maí frá kl. 10:00-15:00 í Fjölheimum (Tryggvagata 13, Selfossi).
Vinsamlegast skannið QR kóðann fyrir frekari upplýsingar og skráningu.

