Sjóðurinn góði 2023

Hægt verður að sækja rafrænt um í Sjóðnum góða inn á http://www.sjodurinngodi.is

Opnað verður fyrir umsóknir 28. nóvember 2023 og er síðasti umsóknardagur 5. desember 2023.
Einnig verður tekið við umsóknum í Selinu við Engjaveg 48, Selfossi https://maps.app.goo.gl/E64gecnMrUgwCQyo6 á eftirtöldum dögum:

Þriðjudag 28.nóv 2023 frá kl. 13 til 15

Fimmtudag 30.nóv. 2023 frá kl. 16 til 18

Úthlutunardagur í Selinu við Engjaveg er:

Þriðjudaginn 19.des 2023 frá kl. 13 til 16

Gögn sem þurfa að fylgja rafrænum umsóknum eða hafa þarf meðferðis eru tekjur síðasta mánaðar og öll útgjöld síðasta mánaðar.