Sigurhæðir – ný þjónusta við þolendur kynbundins ofbeldis á Suðurlandi

Sigurhæðir er þjónusta á Selfossi fyrir konur 18 ára og eldri sem eru þolendur kynbundins ofbeldis í hvaða mynd sem er.

Sigurhæðir bjóða samhæfða ráðgjöf, stuðning og meðferð á þínum forsendum. Í boði er einstaklings- og hópmeðferð ásamt sérhæfðri áfallameðferð. Þá er lögregla til staðar innan Sigurhæða til að veita ráðgjöf og upplýsingar og sömuleiðis er lögfræðileg ráðgjöf í boði.

Konur búsettar á Suðurlandi og aðstandendur þeirra geta komið, hringt og pantað viðtöl til að fá stuðning, ráðgjöf og upplýsingar.

Nánari upplýsingar á: https://www.sigurhaedir.is