Samtal um stefnu í málefnum innflytjenda

Vilt þú hafa áhrif á mótun stefnu í málefnum innflytjenda? Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið vinnur nú í fyrsta sinn að slíkri framtíðarsýn og býður því til samtals hringinn í kringum landið. Stefnt er að því að innflytjendur hafi aukin tækifæri til inngildingar (e. inclusion) og virkrar þátttöku í samfélaginu og eru þeir því sérstaklega hvattir til að mæta og ræða þau sem mál sem þessu tengjast og liggja þeim á hjarta. Við verðum á Selfossi mánudaginn 22. janúar og fundurinn verður túlkaður yfir á ensku og pólsku.

Verið hjartanlega velkomin!

Nánari upplýsingar: Selfoss – Samtal um stefnu í málefnum innflytjenda/ Discussion on Policy on Immigrant Matters | Facebook