Innritun í grunnskóla skólaárið 2022−2023

Innritun barna sem eru fædd árið 2016 og eiga að hefja skólagöngu í Sveitarfélaginu Árborg haustið 2022 fer fram á arborg.is/Mín Árborg til 27. febrúar næstkomandi. Einnig er hægt að skrá börnin í mötuneyti á Mín Árborg. Skráning í frístund fer fram á skráningarvefnum https://fristund.vala.is/umsokn

Upplýsingar um skólahverfi hvers skóla er að finna á www.arborg.is.

Upplýsingar um innritun er hægt að fá í grunnskólunum og hjá þjónustuveri Árborgar (480-1900).