Félagsþjónustan flytur á ný í ráðhús Árborgar, Selfossi

Föstudaginn 30. apríl verður félagsþjónustan komin á ný í ráðhús Sveitarfélags Árborgar að Austurvegi 2, Selfossi.

Félagsþjónusta Árborgar heldur utan um þá málaflokka sem tengjast barnavernd, eldri borgurum, félagslegri ráðgjöf, fjárhagsaðstoð, fólki með fötlun og húsnæðismálum í Sveitarfélaginu Árborg.

Nánari upplýsingar á: https://www.arborg.is/vekjum-athygli-a/felagsthjonustan-flytur-a-ny-i-radhus-arborgar-selfossi