Sjóðurinn góði verður með jólaúthlutun í ár eins og önnur ár.
Hægt verður að sækja um á netinu á þar til gerðu umsóknarblaði. Senda þarf tölvupóst á sjodurinngodi@gmail.com og óska eftir að fá umsóknarblað sent. Útfyllt umsóknarblaðið ásamt fylgigögnum skal senda á sama netfang: sjodurinngodi@gmail.com
Á umsóknardögum verður hægt að hringja í síma 8404690, 8404691, 8404692 og sækja um símleiðis. Aðeins er tekið við umsóknum í síma á auglýstum umsóknartíma.
Þau sem ekki geta sótt um rafrænt eða símleiðis geta komið á umsóknardögum í Selið, Engjavegi 48 (við íþróttavöllinn). Umsóknardagar eru:
- Mánudagur 22. nóv. kl. 10-12
- Þriðjudagur 23. nóv. kl. 16-18
- Miðvikudagur 24. nóv. kl. 10-12
- Mánudagur 6. des. kl. 16-18
Með umsókn þarf að senda / fylgja eftirfarandi gögn:
- Allar tekjur okt. eða nóv. (Vinnulaun, tekjur frá Tryggingastofnun, fæðingarorlof, atvinnuleysisbætur)
- Öll útgjöld okt. eða nóv. (leiga, afborganir lána og húsnæðis, rafmagn/hiti, úgjöld v.barna, tryggingar ofl.)
Vinsamlegast virðið þessar dagsetningar og athugið að ekki er tekið við umsóknum eftir síðasta umsóknardag, hvorki rafrænt né í síma. Síminn er eingöngu opinn á auglýstum umsóknartíma.
Hægt verður að nálgast úthlutanir 15. og 16. desember kl. 16-18 í Selinu, Engjavegi 48 (við íþróttavöllinn).