Kynning á frístundastarfi | LINDEXhöllin

Laugardaginn 31. ágúst, kl. 10:00-12:00 býður Sveitarfélagið Árborg íbúum á kynningu á frístundastarfi í sveitarfélaginu í LINDEX Höllinni.

Á kynningunni gefst áhugasömum tækifæri til að prófa og kynna sér hinar ýmsu íþróttir og frístundir sem í boði eru. Sú nýbreytni verður í ár að það verður einnig kynning fyrir fullorðna. Boðið verður upp á grillaðar pylsur að kynningu lokinni.

Nánari upplýsingar: Kynning á frístundastarfi | LINDEXhöllin | Fréttasafn | Sveitarfélagið Árborg (arborg.is)