Nú hefur Sjóðurinn Góði opnað fyrir umsóknir um jólaaðstoð. Hægt verður að sækja um til 10.desember.
Styrkurinn er hugsaður til þess að styrkja einstaklinga og fjölskyldur sem standa höllum fæti og eiga ekki fyrir nauðþurftum fyrir jólin.
Hér er vefslóð á umsóknina:
- íslenska: https://www.sjodurinngodi.is/is/jolaadastod/umsokn-jol-2024
- enska: https://www.sjodurinngodi.is/is/christmas-help
Gögn sem þurfa að fylgja öllum umsóknum eru: Tekjur og útgjöld fyrir októbermánuð.
Einnig verður hægt að mæta í Selið (við Engjaveg 48, Selfossi https://maps.app.goo.gl/E64gecnMrUgwCQyo6) 3. desember kl.10-12 og 16-18 til þess að fá aðstoð með að sækja um.